Ólíklegt að þjóðin kjósi Steingrím og Jóhönnu næst

Hvað er að æðstu ráðamönnum þjóðarinnar þegar þau skötuhjú Steingrímur og Jóhanna lýsa því bæði yfir að þau ætli ekki að nýta kosningarétt sinn á laugardag ?  Eru þetta skilaboð til okkar kjósenda um að við eigum "ekki" að fara í næstu Alþingiskosningum á kjörstað og kjósa þau ?  Ég skil það þannig.  

Það er lýðræðislegur réttur allra kosningabærra manna að taka afstöðu með því að taka þátt í kosningum.  Það að sitja heima er "ekki" að taka afstöðu.  Kjósendur á laugardag þar með talið Jóhanna og Steingrímur hafa 4 valkosti í kjörklefanum.  a) segja nei b) segja já c) skila auðu og d) gera kjörseðil ógildan (sem að vísu er ekki góður valkostur). 

Yfirlýsingar þeirra hlýtur að fara á topp 5 listann yfir mesta skandal ársins.   Það litla álit sem maður hafði á þessum tveimur einstaklingum hvarf algjörlega núna.


mbl.is Steingrímur: Ólíklegt að ég kjósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón bloggar

Höfundur

Jón Óskarsson
Jón Óskarsson
Áhugamaður um fréttir og málefni líðandi stundar.  Er viðurkenndur bókari og tek sem slíkur að mér skattskil, ársuppgjör, bókhald og launaútreikninga.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband